Veitur boða til íbúa­fundar í Mosfellsbæ

Mánudaginn 22. júní kl. 19.30 í Hlégarði.

Veitur í samvinnu við Mosfellsbæ boða til íbúafundar til að ræða boranaframkvæmdir í Skammadal.

Veitur bora fyrir heitu vatni fyrir vaxandi samfélag og vilja gera það í sátt við náttúru og umhverfi.

Fundurinn verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30-21.00.

Veitur stöðvuðu nýlega borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið á svæðinu fái að njóta vafans.

Hér á vefnum okkar má finna nánari upplýsingar og reglulegar uppfærslur um það sem verið er að gera.

Hvernig getum við aðstoðað þig?