Borað eftir heitu vatni í Laug­ardal

- .

Veitur bora til að tryggja nægt heitt vatn fyrir samfélagið

Heitt vatn í miðri borg

Veitur bora eftir heitu vatni nálægt Kringlumýrarbraut við Engjateig og Bolholt. Framkvæmdin er liður í að tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag og auka afhendingaröryggi hitaveitunnar.

Borun hefst í byrjun október 2026 á báðum stöðum. Áætluð lok við Bolholt eru í lok október og við Engjateig í maí 2027.

Hvað verður gert?

Við afmörkum framkvæmdasvæðin áður en borunum er komið fyrir. Alls verða boraðar 5 holur á svæðinu, ein í Bolholti og fjórar við Engjateig.

Borinn vinnur sig niður í bergið að 800-1500 metra dýpi þar til komið er að nýtanlegu magni af heitu vatni. Á meðan borað er er vatni dælt niður um holuna til að kæla borinn og flytja grjót og borsvarf upp á yfirborðið.

Þegar borun lýkur er holan hreinsuð og prófuð. Þær holur sem gefa nægt heitt vatn verða síðar tengdar hitaveitunni.

Að lokum er borbúnaðurinn fjarlægður og gengið frá svæðinu.

Það sem þú þarft að vita

  • Boruð verður ein hola við Bolholt haustið 2026.
  • Við Engjateig verða boraðar fjórar holur frá október fram í lok maí.
  • Framkvæmdir í heild sinni standa yfir í 8 mánuði frá september 2026 til maí 2027.
  • Framkvæmdasvæðin verða afgirt og vöktuð allan sólarhringinn.
  • Mest verður umferð um svæðið þegar borplön eru útbúin og búnaður fluttur til og frá svæðinu.
  • Við leggjum áherslu á að öryggi á og við framkvæmdasvæðið
  • Ónæði verður haldið í lágmarki.
  • Þegar hola er blásin og prófuð mun sjást gufa frá framkvæmdasvæðinu. Við upplýsum nágranna áður það verður gerist.

Af hverju erum við að bora?

Jarðhitinn í Laugardal hefur yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu en nú bætum við fleiri holum til að anna eftirspurn næstu ára.

Borgin stækkar og fleiri heimili þurfa heitt vatn. Nýju holurnar hjálpa okkur að mæta þeirri þörf og auka öryggi hitaveitunnar þegar notkunin er mest.

Heitt vatn í miðri borg segir nánar frá jarðhitaleit í miðri Reykjavík.

Tímaáætlun

Byrjun september 2026
Borteigar útbúnir. Umferð vinnuvéla á báðum stöðum.

18. september 2026
Borteigurinn tilbúinn og undirbúningur að flutningi borsins hefst.

Lok september 2026
Borinn og annar búnaður flutt á svæðið. Það tekur nokkra daga.
Borun hefst í kjölfarið.

Lok október 2026
Borun lýkur við Bolholt og gengið frá svæðinu eins og veður leyfir.

Október 2026–maí 2027
Borað við Engjateig. Framkvæmdasvæðin verða afgirt á meðan vinnan stendur yfir.

Lok maí 2027
Áætluð lok borana við Engjateig.

Byrjun júní 2027
Borinn verður fluttur af svæðinu og gengið frá svæðinu.

Tímaáætlunin getur breyst eftir því hvernig verkinu miðar. Nýjustu upplýsingar verða alltaf birtar hér.

Af hverju er borað á þessum stöðum?
Svæðið er gjöfult jarðhitasvæði og þar eru nú þegar borholur sem nýttar eru í hitaveitunni. Sérfræðingar Orkuveitunnar og ÍSOR velja staðsetningar út frá ítarlegum rannsóknum síðustu áratuga.

Verður hávaði?
Við gerum ráðstafanir til að takmarka ónæði frá bornum. Við notum rafmagnsbor sem er mun hljóðlátari en díselbor. Ef þú býrð eða starfar nálægt framkvæmdasvæðinu gætir þú þó heyrt lágt suð frá boruninni á daginn og einstaka hljóð þegar búnaður er settur upp.
Ónæði af bornum er mest fyrstu dagana á meðan borað er.

Verður meiri umferð?
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks. Umferð verður mest þegar borplanið er útbúið og borinn fluttur á og af svæðinu. Á meðan borað er verður umferð lítil.

Stundum gæti þurft að beina gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendum aðra leið. Við höldum lokunum í lágmarki og merkjum hjáleiðir vel.

Hvað gerist þegar hola er prófuð?
Þegar borun lýkur er holan blásin og prófuð. Þá getur sést mikil gufa frá framkvæmdasvæðinu í einn dag. Þetta er eðlilegur hluti af verkinu.
Við látum nágranna vita áður en prófunin hefst.

Er framkvæmdasvæðið öruggt?
Öryggismálin eru ávallt í fyrsta sæti hjá Veitum. Svæðið verður afgirt og vaktað allan sólarhringinn.

Getur borunin haft áhrif á hús í nágrenninu?
Við gerum ekki ráð fyrir að borunin hafi áhrif á hús eða önnur mannvirki. Við þekkjum engin dæmi hér á landi um að sambærileg borun hafi valdið skemmdum á húsnæði í nágrenninu.

Hvað verður um vatnið sem er notað við borun?
Vatnið flytur jarðveg og grjót upp úr holunni. Við síum grófasta efnið frá á staðnum. Vatnið fer síðan í fráveituna og í gegnum hreinsistöð áður en því er veitt út í sjó.

Verkefnastjóri: Jón Örn Jónsson
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir
Borverktaki: North Tech Drilling

Hvernig getum við aðstoðað þig?