Heitt vatn í miðri borg

Tæp öld frá fyrstu nýtingu frá Laugardal til húshitunar í Reykjavík

Reykjavík dregur nafn sitt af rjúkandi jarðhitavatni og víða um borgina eru borholur sem nýttar hafa verið til húshitunar áratugum saman. Í Laugardalnum, þar sem nú er borað, er gjöfult lághitasvæði sem sér hluta Reykvíkinga fyrir heitu vatni stóran hluta ársins.

Jarðhitinn gerir okkur kleift að leika okkur úti um hávetur því snjóbræðslan er heitt vatn úr nágrenninu.

Fyrsta holan í Laugardalnum var einnig sú fyrsta sem var nýtt til húshitunar í Reykjavík árið 1928 þegar vatni var veitt frá Þvottalaugunum að Skólavörðuholtinu. Í dag eru níu holur í notkun í Laugardalnum sem sér 30% af Reykjavík vestan Elliðaáa fyrir heitu vatni að vetri til.  

Jarðhitaauðlindin í Laugardal getur gefið töluvert meira heitt vatn en hún gerir í dag. Vaxandi samfélag þarf meira heitt vatn til húshitunar og boranir við Engjateig eru hluti af því að nýta þessi verðmæti enn betur til framtíðar.  

Staðsetning á holunum sem nú á að bora var valin í samstarfi við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar og sérfræðinga ÍSOR. North Tech Drilling sjá um borunina.  

Sjálfbær notkun

Veitur hvíla lághitasvæðin á sumrin til að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra til framtíðar. Á sumrin kemur nægt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið frá jarðvarmavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum. 

Orkan í heita vatninu 

Hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu flytur margfalt meiri orku en rafdreifikerfið, allt að sex sinnum meira. Laugardalur færir íbúum 97 Megavött sem er um helmingur af mestu raforkunotkun árið 2025 á öllu höfuðborgarsvæðinu að álverinu í Straumsvík undanskildu.   

Nokkrar staðreyndir 

Bolholt 
Áætluð dýpt: 800-1200 metrar 
Upphaf borunar: Október 2026 
Nafn bors: VON 
Borfyrirtæki: North Tech Drilling 
Tegund borunar: Bein 
 
Engjateigur 
Áætluð dýpt: 1200-1500 metrar 
Upphaf borunar: Október 2026 
Nafn bors: RIG-16 
Borfyrirtæki: North Tech Drilling 
Tegund borunar: Ein bein og þrjár 20°skáboranir 

Fyrir frekari upplýsingar um boranir í miðri borg og reglulegar uppfærslur.

Íslensk sundlaugarmenning er á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.

Hvernig getum við aðstoðað þig?