.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)
Þorlákshöfn og nágrenni fá heitt vatn frá tveimur borholum við Bakka sem gefa mjög heitt vatn. Nýlega var boruð þriðja holan á Bakka þar sem fyrstu niðurstöður lofa góðu fyrir afhendingaröryggi til framtíðar.
Í síðustu viku varð bilun í búnaði annarrar borholunnar sem gerði hana tímabundið óstarfhæfa. Ein hola dugar ekki ein og sér til að mæta allri notkun í ört vaxandi samfélagi.
Þegar svona staða kemur upp ganga heimilin alltaf fyrir. Um 90% af heita vatninu sem heimilin nota fer í húshitun og því skiptir miklu máli að tryggja að fólk geti haldið þeim hlýjum. Stórnotendur, þar á meðal fyrirtæki og iðnaður á svæðinu, brugðust hratt við beiðni okkar um að draga úr notkun sinni á meðan unnið var að viðgerð.
Við erum afar þakklát fyrir góð viðbrögð í Þorlákshöfn. Þau skiptu sköpum fyrir afhendingu til heimilanna og gerðu okkur kleift að halda uppi þrýstingi í dreifikerfinu. Jafnframt tókst að tryggja vatnsafhendingu til sundlaugarinnar. Meira að segja hjálpaði gott veður um helgina til, því sólin leggur sitt af mörkum til að halda húsum hlýjum.
Samhent átak
Á Suðurlandi er daglegur rekstur, viðhald og viðgerðir í höndum starfsfólks Veitna á svæðinu. Þegar bilun verður í borholu þarf hins vegar að kalla til sérfræðinga víðar að.
Starfsfólk Veitna á Suðurlandi og sérfræðingar í borholudælum frá höfuðborgarsvæðinu sameinuðu krafta sína til að leysa verkefnið. Með samstilltu átaki tókst að greina bilunina, flytja nauðsynlegan búnað á staðinn og vinna hratt að því að koma holunni aftur í gagnið.
.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)
Hvað gerist þegar borhola bilar?
Borholur eru mörg hundruð metra djúpar. Dælan er neðst í holunni og tengd yfirborðinu með löngum rörum og rafbúnaði. Því sést orsök bilunarinnar ekki ofanjarðar.
Bilun getur verið í rafstreng, mótor eða dælunni sjálfri. Til að komast að því hvað hefur gerst þarf að taka allan búnaðinn upp úr holunni, sem krefst sérhæfðs búnaðar og kranabíls.
Á föstudag í síðustu viku varð ljóst að bilunin var í mótornum sem knýr dæluna. Slíkir mótorar eru ekki hilluvara, en sambærilegur mótor var til á lager hjá okkur í Reykjavík og var hann fluttur á Bakka.
Við upptekt búnaðar úr holunni losnuðu jafnframt útfellingar úr rörunum. Þær höfðu safnast í dæluna og gerðu hana ónothæfa. Því þurfti að hreinsa dæluna og tryggja annan búnað til að fyrirbyggja hættu á frekari truflunum.
Mikilvægt að vera tilbúin fyrir veturinn
Nú þegar haustið er gengið í garð eykst notkun á heitu vatni samhliða kólnandi veðri. Þótt við viljum helst ekki sjá bilun í mikilvægum búnaði er betra að slík atvik komi upp áður en kuldaboli fer að bíta.
Við viljum þakka íbúum, fyrirtækjum og sveitarfélaginu í Þorlákshöfn fyrir gott samstarf og skilning á meðan á viðgerðunum stóð. Þegar samfélagið stendur saman er auðveldara að takast á við áskoranir.
Saman vinnum við að því að tryggja örugga afhendingu heits vatns og byggja upp innviði sem styðja við vaxandi samfélag til framtíðar.
.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)