Ferskar Mínar síður Veitna

Betri yfirsýn og einfaldari leið til að halda utan um þín mál hjá Veitum.

Nýjar og endurbættar Mínar síður Veitna eru komnar í loftið. Þar getur þú skoðað notkun og reikninga og fengið yfirsýn yfir þín mál hjá okkur.

Nú er líka hægt að veita öðrum aðgang. Einstaklingar, fyrirtæki og húsfélög geta gefið öðrum umboð, óháð því hver er skráður fyrir mælinum.

Margir hattar, einn aðgangur

Þú skráir þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum og getur síðan farið á milli þeirra aðganga sem þú hefur.

Þannig getur þú til dæmis haft mismunandi svæði undir sama aðgangi:

  • heimilið þitt
  • húsnæði fyrirtækis
  • húsfélag
  • heimili aðstandanda
  • fagaðgang vegna vinnu

Þetta einfaldar málin meðal annars fyrir iðnaðarfólk sem sinnir umsóknum fyrir hönd fyrirtækis, en þarf líka sýn á eigið heimili og aðra staði sem það hefur fengið aðgang að.

Prókúruhafar fyrirtækja geta jafnframt veitt samstarfsfólki mismunandi aðgang eftir því hvaða heimildir þarf.

Kannski finnur þú svarið á Mínum síðum

Við viljum vera til staðar þegar þú þarft á okkur að halda. En stundum þarftu ekki að hafa samband.

Á Mínum síðum getur þú skoðað notkun, séð reikninga aftur í tímann, fengið gagnleg ráð til að fara vel með og skoðað ógreidda reikninga.

Þannig getur þú fundið ýmsar upplýsingar þegar þér hentar.

Hvernig virka umboð?

Þú getur veitt tvenns konar aðgang.

Fullt umboð
Með fullu umboði er meðal annars hægt að breyta greiðslumáta, veita öðrum umboð og sinna sömu erindum og prókúruhafi.

Almennt umboð
Með takmörkuðu umboði er hægt að sinna öllu nema að veita öðrum umboð.

Aðgangurinn er veittur af þeim sem er skráður fyrir mælinum. Fyrir fyrirtæki getur prókúruhafi veitt umboð til annarra.

Svona gerir þú

  • Skráðu þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum.
  • Veldu staðsetningur eða fyrirtæki sem þú vilt sýsla með.
  • Veldu í stikunni í hægra horninu efst „Aðgangar og umboð.“
  • Bættu við umboði.
  • Veldu hvers konar umboð þú vilt veita.
  • Sláðu inn kennitölu þess sem á að fá aðganginn.

Umboðið er þá sýnilegt á Mínum síðum þess sem fær umboðið.

Enn meira á leiðinni.

Við erum rétt að byrja og margt sem á eftir að koma á næstunni. Þá verður hægt að sjá áhrif hitastigs á heitavatns notkun heimilisins, bera eigin notkun saman við sambærileg húsnæði, einfalda utanumhald fyrirtækja og fá einstaklingsbundin ráð til að fara betur með orkuna.

Lesaðgangur á ákveðna mæla verður sömuleiðis mögulegur sem mun koma sér vel fyrir húsfélög.

Veitur tengja vaxandi samfélag við betri yfirsýn.