Borað undir Miklu­braut fyrir nýja rafstrengi

Ný tækni gerir framkvæmdina fljótlegri, hagkvæmari og umhverfisvænni.

Veitur eru að endurnýja háspennustrengi undir Miklubraut sem hafa verið í notkun frá árinu 1965.

Við framkvæmdina er notuð ný bortækni sem gerir okkur kleift að vinna verkið án þess að grafa upp götuna.

Borað undir götuna

Veitur hafa á undanförnum árum notað borun í auknu mæli í stað hefðbundins skurðgraftar. Aðferðin hentar þó ekki hvar sem er. Það fer meðal annars eftir aðstæðum í jörðu og stærð lagna. Þar sem borun er möguleiki eru grafnar holur við báða enda og það eru einu ummerkin sem sjást á yfirborðinu.

Rörin fyrir raflagnirnar liggja frá grasbala öðru megin götunnar, undir akreinar, hljóðmön og trjágróður hinum megin. Umferðin gengur því sinn vanagang á meðan endurnýjun innviða á sér stað.

Bortækið sem sér um vinnuna. Svarta rörið neðst á myndinni fer undir Miklubraut.

Nýr bor veitir nýja möguleika

Klappir hafa hingað til verið áskorun í skurðlausum lausnum. Það er nú breytt þar sem nýr bor hefur verið tekinn í notkun hjá verktaka. Borinn nær allt að 150 metrum undir yfirborðinu, jafnvel þar sem klöpp er til staðar. Hann hentar þó ekki alls staðar, en ávinningurinn er mikill þar sem hann nýtist.

Til margs að vinna

Borinn skilur eftir sig léttara kolefnisspor en hefðbundinn skurðgröftur. Það kemur til vegna minni umferðar vinnuvéla og jarðvegsflutninga.

Borun undir Miklubraut er töluvert ódýrari leið til að leggja nýja strengi. Jafnframt skiptir máli að áhrif á nærumhverfi og umferð eru mun minni.

Við réttar aðstæður nýtum við nýja tækni til að endurnýja innviði með minni umhverfisáhrifum og lægri kostnaði fyrir samfélagið.

Innviðir endurnýjaðir og umferðin gengur sinn vanagang á Miklubraut.