Veitur hófu rannsóknarboranir í landi Hvassafells í Borgarfirði í vikunni. Þar eru jarðlög og vatnsgæfni rannsökuð með því að bora holur innan við vatnsgæfustu lindir á svæðinu til að kanna hvort þar séu möguleikar til nýtingar til staðar.
Rannsóknarholurnar verða tvær til þrjár og tekur um tvær vikur í heildina að bora þær. Borinn er í smærra lagi og á beltum. Fyrsta holan hefur verið kláruð og var hún boruð niður í 34 m. Hafist verður handa við næstu holu strax eftir helgi og verður framhaldið metið í kjölfarið. Holurnar verða svo dæluprófaðar og sýni tekin til að meta vatnsgæði.
Einnig standa yfir rennslismælingar á lindarennsli á svæðinu til þess að fá mat á rennslissveiflum í mismunandi árferði.
Viðbót við vatnsveitu í Borgarfirði
Rannsóknarboranir í Hvassafelli eru skref í átt að viðbót við Grábrókarveitu sem hefur séð svæðinu fyrir neysluvatni undanfarin ár ásamt borholum á Seleyri og lindum í Hafnarfjalli. Grábrókarveita er viðkvæmt vatnsból, en ofankoma og jarðhræringar auka reglulega grugg í vatninu.
Í vikunni hefur jafnframt verið unnið að uppsetningu prufubúnaðar fyrir aukna síun á vatni úr Grábrókarhrauni til að sjá hvort fjölþrepa síun geti verið fýsilegur kostur til að takmarka grugg sem berst út í dreifikerfið. Veitur binda vonir við að hægt verði að takmarka notkun Grábrókarveitu enn frekar með tilkomu nýs svæðis.
Tengdar fréttir

Ný tækni gerir framkvæmdina fljótlegri, hagkvæmari og umhverfisvænni.

Undanfarið hafa orðið endurteknar rafmagnstruflanir í Mosfellsbæ. Þær hafa valdið íbúum og fyrirtækjum óþægindum sem við hörmum.