Borinn á 300 metra dýpi

Borun við Engjateig fer vel af stað.

Borun við Engjateig í Laugardal fer vel af stað. Borinn er kominn á um 300 metra dýpi en fer niður á um 1500 metra þegar mest verður.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, hófu borunina formlega 15. október síðastliðinn en borun við Bolholt hefst snemma á næsta ári.

Borinn ræstur af Hildi borgarstjóra og Sólrúnu framkvæmdastýru Veitna undir leiðsögn frá NTD.

Framkvæmdin er nýr kafli í nær aldarlangri sögu jarðhitanýtingar í Laugardal og er markmiðið að auka afhendingaröryggi hitaveitunnar og tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag. Nú þegar eru níu borholur í notkun á jarðhitasvæðinu sem nefnist Laugarnes, en þar verður í vetur borað eftir heitu vatni á tveimur stöðum, við Engjateig og Bolholt. Borun við Engjateig stendur yfir fram á næsta vor en borun í Bolholti stendur skemur yfir.

Borinn er kominn niður á 300 metra dýpi og næsti áfangi að hefjast. Þá er borað með vatni sem síðan er hreinsað áður en því er veitt í fráveituna.

Borun í þéttu borgarumhverfi krefst vandaðs undirbúnings og eru framkvæmdasvæðin ávallt afmörkuð. Veitur munu upplýsa íbúa, rekstraraðila og vegfarendur reglulega meðan á vinnu stendur.

Þegar borholan verður prófuð verður gufa sýnileg á framkvæmdasvæðinu. Það er eðlilegur hluti borunar og verður látið vita af þessu fyrirfram.

Nánari upplýsingar, kort af framkvæmdasvæðum og uppfærslur á framvindu má finna á upplýsingasíðu Veitna: Borað eftir heitu vatni í Laugardal.