Borfram­kvæmdir í Skammadal stöðv­aðar

Lífríkið fær að njóta vafans

Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans.

Óháðir sérfræðingar verða fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa.

Við skiljum vel að ásýnd Varmár og umræðan undanfarna daga veki áhyggjur hjá íbúum og þeim sem tengjast svæðinu sterkum böndum. Við tökum það mjög alvarlega.

Við vinnum náið með eftirlitsaðilum og sérfræðingum að því að meta umhverfisáhrifin og tryggja að lífríkið njóti vafans. Við munum halda áfram að upplýsa um stöðuna á hér á vefnum okkar.

Meira um borframkvæmdir í Skammadal