Veitur hafa lokið við borun eftir heitu vatni á Bakka í Ölfusi, en þar eru fyrir tvær borholur sem sjá meðal annars Þorlákshöfn fyrir heitu vatni.
Vatnsmikil og heit hola
Nýja borholan á Bakka er kærkomin viðbót fyrir húshitun í Þorlákshöfn og nágrenni. Hún virðist vera bæði passlega heit og ágætlega gjöful. Fyrstu niðurstöður benda til að hún sé gjöful af um 95°C vatni, sem er lofar góðu fyrir hitaveituna á svæðinu.
Borholan, sem ber nafnið HJ-02, var boruð af North Tech Drilling, NTD, sem vinnur fyrir Veitur þessi misserin enda umfangsmikil jarðhitaleit hafin til að afla forða fyrir vaxandi samfélag á þjónustusvæðum Veitna.
Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, gerðu tillögu að staðsetningu og hönnun holunnar ásamt COWI á Íslandi.
Virkjun til nýtingar
Nú taka við frekari rannsóknir á holunni og eiginleikum hennar áður en hægt verður að virkja hana til nýtingar til húshitunar á svæðinu. Borinn sjálfur er farinn til annarra verka og gengið verður frá borplani og vinnusvæðinu. Rannsóknir á efnasamsetningu vatnsins eru framundan, en vatnið á Bakka er kísilríkt.
Þar til rannsóknum og áætlunum um virkjun holunnar og tengingum við dreifikerfið lýkur er ekki hægt að segja með vissu hvenær hún verður tilbúin til nýtingar. Holan ætti þegar hún verður tekin í notkun auka rekstraröryggi og styðja við vaxandi byggð á veitusvæðinu.
Staðreyndir HJ-02
Bortæki: Rig-16 (Drillmec HH102)
Borverktaki: North Tech Drilling
Dýpt holu: 800 m.
Hitastig holu: um 95°C
Vatnsmagn: Gott, en endanlegrar niðurstöðu beðið.
Tengdar fréttir