Veitur undirbúa borun eftir heitu vatni á Bakka í Ölfusi, þar sem nú þegar eru tvær borholur sem sjá meðal annars Þorlákshöfn fyrir heitu vatni. Borplanið er tilbúið á Bakka og borinn mætir á svæðið næstu daga.
Ný hola í líkingu við þá sem er við hliðina með ákjósanlegri efnasamsetningu myndi nýtast vel í hitaveituna á svæðinu. Efnasamsetning vatnsins sem fæst úr borholum ræður mestu um hversu miklar útfellingar koma í kerfið.
Þriðja hitaveituholan á Bakka
Þorlákshöfn og nágrenni fá heitt vatn frá tveimur borholum við Bakka og svæðið er gjöfult lághitasvæði þar sem rannsóknir gefa til kynna að nóg sé af heitu vatni. Vatnið er mjög heitt frá náttúrunnar hendi, eða um 92°C þegar það kemur að húsum í Þorlákshöfn.
Vonir standa til að ný hola færi svæðinu góðan forða af hentugu heitu vatni sem getur staðið undir þörfinni í vaxandi samfélagi í Ölfusi.
Efnasamsetning heita vatnsins skiptir máli
Vatnið við Bakka er kísilríkt, sem meðal annars kemur vegna háa hitans, því svo heitt vatn tekur meira af efnum úr berggrunninum en vatn sem er kaldara.
Rannsóknir Veitna og móðurfélags Veitna, Orkuveitunnar, á eiginleikum heita vatnsins sýna að útfellingar eru mestar í heita vatninu í Þorlákshöfn þegar hitastigið fer niður fyrir 35°C.
Meira um útfellingar í heita vatninu í Þorlákshöfn og nágrenni
