Notkun á heitu vatni hefur því verið í hámarki yfir langan tíma. Því þurfa Veitur að skerða vatn til sumra stórnotenda á höfuðborgarsvæðinu á morgun, það er til allra sundlauga og baðlóna, en Veitur forgangsraða alltaf til húshitunar. Spáð er hlýrra veðri á föstudag svo vonandi þurfum við ekki að skerða vatnið lengur en fram yfir hádegi á föstudag.
Vegna mikillar notkunar á heita vatninu þessa dagana gætu íbúar á einhverjum svæðum höfuðborgarsvæðisins fundið fyrir lækkun á þrýstingi. Við hvetjum fólk til að fara vel með varmann, athuga með þéttingar á gluggum og hurðum, tryggja að hitakerfið sé að virka rétt og láta ekki renna í heita pottinn á allra köldustu dögunum.

Borað eftir heitu vatni fyrir vaxandi samfélag ...

Endurnýjun og uppbygging innviða er brýnasta viðfangsefni vatnsgeirans í Evrópu samkvæmt könnun EurEau, samtaka vatnsveitna og fráveitna í 33 Evrópulöndum.