Í dag hefst flutningur á hundrað tonna bor í Laugardalinn, en þar ætla Veitur að bora til að tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag. Framkvæmdin er nýr kafli í nær aldarlangri sögu jarðhitanýtingar á svæðinu.
Veitur hafa undanfarið undirbúið borun eftir heitu vatni á tveimur stöðum, við Engjateig og Bolholt. Borun hefst við Engjateig í næstu viku og stendur fram á vor 2027. Borun í Bolholti hefst nokkru síðar og stendur yfir mun skemur.
Markmiðið er að auka afhendingaröryggi heita vatnsins og mæta þörfum vaxandi samfélags til framtíðar. Laugardalur á sérstakan sess í sögu hitaveitunnar í Reykjavík og jarðhiti á svæðinu hefur yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu.
„Það er auðvelt að gleyma því í dagsins önn að undir götunum, húsunum og görðunum okkar er jarðhitaauðlind sem gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi borgarbúa. Með þessari borun erum við bæði að tryggja þjónustu til framtíðar og halda áfram langri sögu ábyrgrar nýtingar jarðhitans í Reykjavík,“ segir Brynja Ragnarsdóttir forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum.
Upplýsingum miðlað reglulega
Borun í þéttu borgarumhverfi krefst vandaðs undirbúnings og framkvæmdasvæðin verða afmörkuð. Veitur munu upplýsa íbúa, rekstraraðila og vegfarendur reglulega meðan á vinnu stendur.
„Jarðhitinn á þessu svæði er vel þekktur, en hver ný hola gefur okkur mikilvægar upplýsingar um auðlindina. Við erum í raun að horfa niður í jarðhitakerfi sem er ósýnilegt frá yfirborði og leita að leiðum til að nýta það með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“ segir Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi hitaveitu hjá Orkuveitunni.
Þegar borholan verður prófuð verður gufa sýnileg á framkvæmdasvæðinu. Það er eðlilegur hluti borunar og verða nágrannar látnir vita af því fyrirfram.
Nánari upplýsingar og uppfærslur á framvindu má finna á upplýsingasíðu Veitna: Borað eftir heitu vatni í Laugardal.
Tengdar fréttir
Umfangsmesta leit að heitu vatni í 50 ár.
Borað eftir heitu vatni, ár jarðhitaleitar hjá Veitum.
Borað eftir heitu vatni í Laugardal.