
Veitur taka þátt í verkefninu LIFE ICEWATER og hluti af því er að fá betri sýn á dreifikerfi neysluvatns á tveimur stöðum á þjónustusvæðunum okkar.
Á Álftanesi hafa þegar verið settir mælar á dreifilagnir til að við höfum betri sýn og nú er komið að næsta áfanga í verkefninu.
Álftanes og Borgarnes
Á Álftanesi og í Borgarnesi er snjallmælauppsetning framundan og samtímis munu Veitur setja sérstaka mæla við inntakið á kalda vatninu. Ástæðan fyrir valinu á staðsetningu er sú að lekar og sírennsli hafa verið algengir í kerfum beggja staða. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir sóun í viðamiklu lagnakerfinu.
Mælarnir eru settir upp til að auðvelda lekaleit í dreifikerfum vatnsvietunnar, gæðamæla neysluvatnið þar sem það kemur inn í hús við endann á löngu lagnakerfi og finna flöskuhálsa í kerfunum okkar.
Mælarnir eru eingöngu til að bæta rekstur á kerfunum okkar og koma í veg fyrir leka sem sóa dýrmætum auðlindum. Eingöngu fyrirtæki og stórnotendur eru rukkuð fyrir notkun á kaldavatninu og engar áætlarnir um að það breytist.
Íbúar á þessum stöðum geta nýtt mælana til að sjá hvort innanhússkerfin þeirra eru að virka sem skyldi. Mælar sem sýna notkun þegar hún ætti ekki að vera geta bent til sírennslis í eigin kerfi sem borgar sig að láta fagfólk skoða áður en tjón getur hlotist.