Rafmagnstrufl­anir í Mosfellsbæ og aðgerðir til úrbóta

Undanfarið hafa orðið endurteknar rafmagnstruflanir í Mosfellsbæ. Þær hafa valdið íbúum og fyrirtækjum óþægindum sem við hörmum.

Truflanirnar hafa átt sér ólíkar skýringar, meðal annars bilanir í háspennukerfi, utanaðkomandi aðstæður og framkvæmdir sem tengjast endurnýjun rafkerfisins og styrkingu innviða.

Við höfum farið yfir hvert atvik og gripið til úrbóta þar sem þörf er á og munum jafnframt halda áfram að styrkja rafdreifikerfið í Mosfellsbæ með umfangsmiklum fjárfestingum. Markmiðið er að auka rekstraröryggi og tryggja til framtíðar örugga afhendingu raforku til íbúa og fyrirtækja í Mosfellsbæ.

Umfangsmikil uppbygging

Veitur hafa á undanförnum árum lagt ríka áherslu á að styrkja rafdreifikerfið í Mosfellsbæ. Meðal helstu verkefna eru uppfærsla stjórn- og varnarbúnaðar í aðveitustöð Veitna við Dælustöðvarveg, endurnýjun og stækkun spenna í Korpu, endurnýjun háspennubúnaðar í aðveitustöðinni við Dælustöðvarveg og ný tvöföld strenglögn milli Korpu og Mosfellsbæjar sem er á lokastigi.

Samtals nema þessar framkvæmdir rúmlega einum milljarði króna. Til viðbótar koma framkvæmdir vegna uppbyggingar nýrra hverfa, endurnýjun eldri innviða og reglubundið viðhald. Á næstu árum eru fleiri verkefni fyrirhuguð, meðal annars nýr strengur að Reykjahlíð og nýtt spennahús sem mun styrkja raforkuafhendingu til framtíðar.

Við þökkum íbúum og fyrirtækjum í Mosfellsbæ fyrir sýndan skilning. Áfram verður lögð áhersla á að upplýsa um framkvæmdir og framvindu þeirra í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld, auk þess að tryggja örugga og áreiðanlega raforkuafhendingu til framtíðar.