Orku­notkun í þínum höndum

Veitur og Hugsmiðjan hafa undirritað samstarfssamning um þróun á nýjum þjónustuvef sem mun styrkja samskipti Veitna við almenning.

Hugsmiðjan og Veitur þróa nýjan þjónustuvef fyrir viðskiptavini Veitna

Veitur og Hugsmiðjan hafa undirritað samstarfssamning um þróun á nýjum „Mínum síðum“ fyrir viðskiptavini Veitna.

Veitur vilja veita framúrskarandi þjónustu og telja mikilvægt að viðskiptavinir skilji sína orkunotkun, reikninga og geti nálgast upplýsingar á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Samstarfið við Hugsmiðjuna er stórt skref í þeirri vegferð.

Orkunotkun í þínum höndum

Nýjar „Mínar síður“ munu gera viðskiptavinum kleift að fylgjast með allri sinni orkunotkun á einum stað og á mun aðgengilegri hátt. Þar verður hægt að skoða reikninga, greiðslur og notkun, fylgjast með þjónustubeiðnum og fá persónulega ráðgjöf um orkusparnað og sjálfbærar lausnir.

„Við viljum færa þjónustuna nær viðskiptavinum okkar sem eru íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög, og gera hana gagnsærri. Með samstarfi við Hugsmiðjuna getum við stytt leiðina milli viðskiptavinarins og upplýsinga sem skipta máli og þannig hjálpað fólki að taka upplýstari ákvarðanir um eigin orkunotkun. Það verður mikil framför,“ segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona þjónustu hjá Veitum.

„Sem stærsta veitufyrirtæki landsins reka Veitur marga mikilvægustu innviði samfélagsins. Með þessu samstarfi styrkjum við tengsl Veitna við almenning og gerum þjónustuna einfaldari, gagnsærri og sjálfbærari. Viðskiptavinir fá þannig meiri yfirsýn og stjórn á eigin orkunotkun, sem er einmitt kjarninn í því sem Hugsmiðjan sérhæfir sig í; að skapa stafrænar lausnir sem gera þjónustu aðgengilegri fyrir öll,“ segir Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar.

Á myndinni: Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Þjónustu Veitna og Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar
Á myndinni: Þorfinnur Skúlason, vefstjóri Veitna, Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Þjónustu Veitna, Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, Ólafur Sverrir Kjartansson, tæknistjóri Hugsmiðjunnar og Jóhanna Helga Þorkelsdóttir, hönnunarstjóri Hugsmiðjunnar