Akra­nes: Hugum að kalda vatninu á komandi loðnu­vertíð

Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga sérstaklega að notkun kaldavatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand.

Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.

Á meðan loðnuvertíð stendur yfir eykst heildar vatnsþörf í bænum verulega. Alla jafna er það ekki vandamál, en nú hafa einhverjir mestu þurrkar þessa árstíma í nærri heila öld, ásamt langvarandi frosti, haft áhrif á vatnstökusvæði bæjarins. Úrkoma hefur verið lítil og vatnsból Akraness eru sérstaklega háð veðri og náttúruskilyrðum.

Neysluvatn Skagamanna og nærsveita er lindarvatn frá Ósveitu og Slögu, ásamt vatn úr Berjadalsá. Allt vatn er meðhöndlað og gegnumlýst til að tryggja heilnæmi þess.

Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja að huga sérstaklega að notkun kaldavatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand.

Sveitarfélagið leggur einnig sitt af mörkum og grípur til aðgerða þar sem við á, meðal annars með því að loka Jaðarsbakkalaug tímabundið, enda nýtir hún mikið vatn.

Hvernig förum við vel með vatnið?

Athugið að sjálfsögðu er mikilvægt að drekka mikið af vatni og nota í matseld eins og alla aðra daga. En vatn sem rennur viðstöðulaust getur verið umtalsverð sóun. Á meðan þurrkatíð og vertíð fara saman getur hófstillt notkun skipt máli fyrir heildina — til dæmis með því að stytta sturtur, fylla vélar áður en þær eru settar í gang og nýta sparnaðarstillingar þar sem þær eru í boði.

Gert er ráð fyrir að loðnuvertíðin standa yfir í 2-3 vikur. Með samstilltu átaki er unnt að tryggja bæði nægt neysluvatn og að verðmætasköpun á Akranesi gangi óhindrað fyrir sig.

Veitur vinna jafnframt áfram að því að styrkja vatnsöflun bæjarins til lengri tíma. Rannsóknir á nýjum vatnstökusvæðum á Vesturlandi eru í forgangi hjá Veitum.

Nýskapandi lausnir draga úr álagi

Loðnuvertíðin er mikilvæg fyrir atvinnulíf á Akranesi. Hrognavinnsla skapar störf og verðmæti allt árið. Undanfarið hafa Veitur og Brim unnið saman að því að draga úr álagi á neysluvatnskerfið. Með nýsköpun og samvinnu er gert ráð fyrir að unnt verði að minnka notkun í vinnslunni um allt að 80%, án þess að draga úr gæðum eða öryggi.

Með þessum aðgerðum er markmiðið að lágmarka álag á vatnsforða bæjarins á meðan loðnuvertíð stendur yfir.

Hvernig getum við aðstoðað þig?