Boranir hafnar fyrir vatns­veitu í Borg­ar­firði

Rannsóknarholur boraðar í landi Hvassafells

Veitur hófu rannsóknarboranir í landi Hvassafells í Borgarfirði í vikunni. Þar eru jarðlög og vatnsgæfni rannsökuð með því að bora holur innan við vatnsgæfustu lindir á svæðinu til að kanna hvort þar séu möguleikar til nýtingar til staðar.

Rannsóknarholurnar verða tvær til þrjár og tekur um tvær vikur í heildina að bora þær. Borinn er í smærra lagi og á beltum. Fyrsta holan hefur verið kláruð og var hún boruð niður í 34 m. Hafist verður handa við næstu holu strax eftir helgi og verður framhaldið metið í kjölfarið. Holurnar verða svo dæluprófaðar og sýni tekin til að meta vatnsgæði.

Einnig standa yfir rennslismælingar á lindarennsli á svæðinu til þess að fá mat á rennslissveiflum í mismunandi árferði.

Viðbót við vatnsveitu í Borgarfirði

Rannsóknarboranir í Hvassafelli eru skref í átt að viðbót við Grábrókarveitu sem hefur séð svæðinu fyrir neysluvatni undanfarin ár ásamt borholum á Seleyri og lindum í Hafnarfjalli. Grábrókarveita er viðkvæmt vatnsból, en ofankoma og jarðhræringar auka reglulega grugg í vatninu.

Í vikunni hefur jafnframt verið unnið að uppsetningu prufubúnaðar fyrir aukna síun á vatni úr Grábrókarhrauni til að sjá hvort fjölþrepa síun geti verið fýsilegur kostur til að takmarka grugg sem berst út í dreifikerfið. Veitur binda vonir við að hægt verði að takmarka notkun Grábrókarveitu enn frekar með tilkomu nýs svæðis.

Tengdar fréttir

Grábrókarveita hreinsun lagna

Hvernig getum við aðstoðað þig?