Samtal um framtíð vatns­verndar og skóg­ræktar

Fulltrúar Skógræktarfélags Reykjavíkur heimsóttu á föstudaginn vatnsverndarsvæði Veitna í Heiðmörk. Markmið heimsóknarinnar var að efla samtal og samráð milli aðila um framtíðarsýn fyrir Heiðmörk, þar sem vatnsvernd og skógrækt hafa farið hönd í hönd í hátt í heila öld.

Fyrir hönd Skógræktarfélagsins mættu Jóhannes Benediktsson, stjórnarformaður, stjórnarmennirnir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Valgerður Hrund Skúladóttir, auk Auðar Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra.

Fyrir hönd Orkuveitunnar og Veitna tóku á móti þeim Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum, og Olgeir Örlygsson, sérfræðingur í rekstri og öryggi vatnsveitu.

Í heimsókninni var farið um helstu vatnstökusvæðin þar sem Veitur kynntu sínar áherslur á verndun vatnsbóla og rekstraröryggi, og lögðu fram sína framtíðarsýn um hvernig mætti tryggja öfluga vatnsvernd til lengri tíma. Jafnframt fór fram umræðu um breyttar forsendur í ljósi fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi, sem enn eru í vinnslu og engin endanleg ákvörðun hefur verið tekin um.

Heimsóknin gaf tækifæri til að skiptast á sjónarmiðum og auka gagnkvæman skilning á starfsemi og áherslum hvors aðila. Stefnt er að sambærilegri heimsókn á svæði Skógræktarfélagsins á næstunni.

Samstarf Veitna og Skógræktarfélags Reykjavíkur á sér djúpar rætur og mikilvægt er að raddir beggja heyrist við mótun framtíðarstefnu fyrir þetta mikilvæga útivistar- og vatnstökusvæði höfuðborgarinnar.

Hvernig getum við aðstoðað þig?