Jarð­hita­leit á Akra­nesi

Veitur bora eftir heitu vatni til húshitunar í vaxandi samfélagi.

Það eru spennandi tímar framundan á Akranesi þar sem Veitur hafa hug á að bora rannsóknarholu til að leita eftir heitu vatni á Akranesi til að tryggja heitt vatn til húshitunar í vaxandi samfélagi. Framkvæmdin verður í grenndarkynningu frá 4. febrúar til 4. mars og hægt verður að senda inn athugasemdir í gegnum Skipulagsgátt.

Frá fimmta áratugnum hefur verið borað á Akranesi til að kanna hvort þar sé að finna heitt vatn. Þessar rannsóknarholur sýna glöggt að það er jarðhiti undir Akranesi. Borholan á holtinu við heimavistina er 1400 metra djúp og hitinn þar er 140°C, sem er mjög heitt.

Það er því alveg ljóst að hitinn er til staðar en það hefur ekki fundist vatn í sömu holum sem er forsenda þess að þær nýtist til húshitunar. Veitur hafa í nánu samstarfi við ÍSOR (Íslenskar orkurannsóknir) undanfarin ár reiknað út líkur á því hvar bæði hiti og vatn sé hugsanlegt að finna út frá þeim rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar á svæðinu.

Tveir staðir eru taldir líklegastir til að finna heitt vatn, annars vegar við Skarðsbraut, nær Innesvegi, en hins vegar við Jaðarsbakka við bílastæðið við Langasand.

Jaðarsbakkar líklegri til árangurs

Veitur og ÍSOR telja að við Jaðarsbakka sé hugsanlega að finna hvoru tveggja, vatn og varma, í nýtanlegu magni til að auka afhendingaröryggi hitaveitunnar á Akranesi. Nýtanleg hola myndi bæta við forða hitaveitunnar til að mæta aukinni orkuþörf í vaxandi samfélagi.

Veitur eru með skýra tímalínu fyrir borun á rannsóknarholu við Jaðarsbakka. Áætlun gerir ráð fyrir að borun taki sex vikur. Frágangi á svæðinu á að ljúka fyrir mánaðarmótin maí-júní. Veitur hafa ákveðið að ef tímaramminn fyrir undirbúning verður knappur þá verði borun frestað til hausts.

Veitur hafa einsett sér að frágangur á svæðinu verði til fyrirmyndar.

Öryggi og umhverfi

Snyrtileg aðkoma og umhverfi við náttúruperluna Langasand er í fyrirrúmi á meðan framkvæmd stendur og frágangur eftir að henni lýkur skal vera til fyrirmyndar. Vatnsbrunnur, fánastöng, listaverk og gróður verða sett upp að nýju.

Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda, sér í lagi barna, og starfsfólks á svæðinu. Stórar vinnuvélar verða á staðnum á meðan undirbúningi stendur, en þegar borinn hefur verið settur upp verður umferð lítil.

Bráðabirgðalögn fyrir kalt vatn sem notað er fyrir borinn verður lögð frá Garðabraut. Hún verður að mestu ofanjarðar en þó grafin niður þar sem hún þverar göngustíga, vegi og bílastæði. Hún verður fjarlægð að framkvæmd lokinni. Lögnin á ekki að hafa nein áhrif á afhendingu kalds vatns á svæðinu og íbúar finna því ekki fyrir því.

Þegar borun lýkur verður holunni lokað með öruggum hætti þannig að engin hætta stafi af.

Fyrirhugað vinnusvæði á Jaðarsbökkum. Öryggi verður í fyrirrúmi.

Nýr og hljóðlátari bor

Borholan verður staðsett við hlið bílastæðisins við Langasand þar sem stiginn og sturtan eru við sandinn. Bílastæðinu verður lokað á meðan unnið er, en aðkoma sjúkrabíla verður tryggð að íþróttasvæðinu og þyrlupallinum. Göngu- og hjólastígur meðfram sjónum verður opinn allan tímann og það sama á við um aðgengi að sandinum. Efri stíg verður lokað á meðan en hjáleið sett upp.

Til að setja upp borpall við bílastæðið þarf töluverðan undirbúning með greftri og stórum vinnuvélum. Áhersla er lögð á öryggi við vinnusvæðið, bæði vegfarenda og starfsfólks. Undirbúningur tekur um fjórar vikur og umfangið er töluvert enda þung tæki sem notuð eru.

Borinn sem notaður verður, er rafknúinn og er þar af leiðandi mun hljóðlátari en borar sem almennt hafa verið notaðir. Allra nánasta umhverfi mun þó heyra í bornum og Veitur gera það sem hægt er til að takmarka hljóðin sem berast.

Veitur telja nokkrar líkur á að heitt vatn finnist á þessum stað á Akranesi og í því magni að það sé góð viðbót við hitaveituna á Skaganum.

Grenndarkynning
Framkvæmdin mun nú fara í grenndarkynningu. Athugasemdir þurfa að berast í gegnum Skipulagsgátt fyrir 4. mars 2026.

Hvernig getum við aðstoðað þig?