Kaldár­holt í Rangár­þingi Ytra

Borað eftir heitu vatni fyrir vaxandi samfélag

Í Kaldárholti eru Veitur að hefja borun eftir heitu vatni fyrir hitaveituna á svæðinu (Rangárveitu), þar með talið Hvolsvöll og Hellu. Á staðnum eru nú þegar tvær borholur í nýtingu sem hafa reynst vel en þörf er á að styrkja hitaveituna í vaxandi samfélagi á svæðinu.

Í undirbúningi er borun á einni holu sem verður boruð í júlí. Þess er vænst að vinna megi meira heitt vatn úr jarðhitakerfinu við Kaldárholtslæk en nú er gert.

Vatnið í holunum sem fyrir eru er um 65°C heitt og vinnslugeta þeirra er samanlagt um 100 L/sek. Þær eru um 500 metra djúpar. Nýja holan verður um 800 metra djúp.

Hvert fer borvatnið eftir notkun?

Við boranir er notað vatn til að ná upp úr holunni borsvarfi sem eru náttúruleg jarðefni. Þetta skolvatn er leitt í gegnum ferli þar sem grófasta borsvarfið fellur út áður en það fer í stóra svarfþró. Í svarfþrónni kólnar vatnið og fínni efni falla til botns. Veitur endurnýta síðan vatnið til borunar og þannig er hringrásarkerfi myndað á borstað.

Þetta nýja ferli við boranir hjá Veitum er hluti af því að bora á umhverfisvænni máta en áður og verður nýtt þar sem því verður við komið.

Veitur hafa leyfi til að veita skolvatninu frá bornum í Kaldárlæk, en það er ekki í bígerð að nýta þann möguleika nema að litlu leyti og þá eingöngu ef allar aðrar leiðir hafa ekki skilað þeim árangri sem við viljum ná.

Rannsóknir og eftirlit á lífríki og umhverfi

Veitur láta rannsaka lífríki og umhverfi í nágrenni borana áður en boranir hefjast og eftirlit verður stöðugt á svæðinu á meðan borun stendur. Þannig tryggjum við að nauðsynleg gögn verði til staðar til að unnt verði að meta áhrif áhrif borana á umhverfið.

Hvernig getum við aðstoðað þig?