
Einfaldari tengingar við nauðsynlega innviði
Veitur hafa opnað nýjan umsóknavef fyrir heimlagnir á Mínum síðum Veitna.
Veitur vilja með nýjum umsóknavef auka gagnsæi og upplýsingaflæði í umsóknaferlinu fyrir þau sem nýta það. Þannig verða heimlagnaumsóknir einfaldari og auðveldara að sækja um þessar mikilvægu tengingar.
Aukið gagnsæi með einfaldara ferli
Fagaðilar geta með einföldum hætti staðfest þau verk sem eru skráð á þau hjá Veitum og séð stöðuna á umsókn. Með nýjum vef fækkar reitum í umsókn, minni handavinnu er þörf og allt ferlið er skýrara.
Á nýja umsóknarvefnum munu fagaðilar með tímanum á einum stað m.a. geta: staðfest verk, yfirfarið og samþykkt eða hafnað verkum, upplýst um fjölda og gerð mæla, óskað eftir spennusetningu og óskað eftir straumspennusettum.
Bætt þjónusta með betri umsóknavef
Nýi umsóknarvefurinn kemur til með að auka sjálfvirkni og skilvirkni þjónustuferla hjá Veitum sem munu skila sér í betri yfirsýn, bættu upplýsingaflæði og styttra umsóknarferli til hagsbóta fyrir viðskiptavini.
Til að byrja með er nýi vefurinn eingöngu fyrir nýjar tengingar í heimlögnum því við trúum því að með því að fara strax í loftið með einn hluta getum við samhliða bætt aðra hluta vefsins.
Við hjá Veitum höfum bætta þjónustu að leiðarljósi í öllum okkar verkum og liður í því er að hlusta á bæði fagaðila og aðra sem sækja um heimlagnir hjá okkur. Það er til mikils að vinna fyrir öll að bæta ferlið og fækka til muna þeim skiptum sem umsækjendur og fagaðilar þurfa að hafa samband við Veitur vegna umsókna í ferli.

Við þurfum á öllum núverandi vatnsbólum að halda og síðar fleiri til. Núverandi vatnsból munu því ekki víkja fyrir nýjum heldur verða áfram grunnur vatnsöflunar samhliða uppbyggingu nýrra vatnstökusvæða.
Veitur, Landsnet og Norðurorka í samvinnu við utanríkisráðuneytið hafa tekið höndum saman til að styðja við endurreisn og rekstur raforkukerfa í Úkraínu.