Pétur ráðinn þróunar- og viðskipta­stjóri Veitna

Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur (OR).

Image alt text

Pétur mun m.a. sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitarfélaga og Veitna og mun heyra beint undir framkvæmdastýru fyrirtækisins.

Pétur hefur starfað hjá Reykjavíkurborg sem aðstoðarmaður borgarstjóra frá árinu 2014. Áður var hann bæjarfulltrúi í Kópavogi og sinnti ritstjórnar- og markaðsmálum á Skjánum. Pétur er með BA gráðu í sagnfræði og MA gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.

Stór verkefni fram undan

„Pétur kemur inn á mikilvægum tímapunkti þegar mikil uppbygging og vöxtur eru fram undan ásamt þéttingu byggðar á okkar þjónustusvæðum. Þá erum við í mörgum stórum samstarfsverkefnum með sveitarfélögunum sem Veitur þjónusta. Slík verkefni krefjast mikils samstarfs og samskipta milli uppbyggingaraðila þannig að við erum mjög ánægð með að fá Pétur, sem býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði, til liðs við okkur,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

Framsækið fyrirtæki

„Með nýju starfi þróunar- og viðskiptastjóra skapast mikil og spennandi tækifæri til að nýta innviði betur og samræma áætlanir milli sveitarfélaga og Veitna. Þannig getum við nýtt tímann og þann öfluga mannauð sem Veitur búa yfir á sem áhrifaríkastan máta. Ég er ótrúlega spenntur að takast á við þessi verkefni enda eru Veitur afar framsækið fyrirtæki og alþjóðlega leiðandi á sínu sviði,“ segir Pétur um ráðninguna.

Stærsta veitufyrirtæki landsins

Veitur er stærsta veitufyrirtæki landsins með fjölbreytta og samfélagslega mikilvæga starfsemi. Hlutverk Veitna er að þróa og byggja upp veitukerfi sem eru grundvöllur lífsgæða og gæta þess að viðskiptavinir hafi aðgengi að hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu.

Veitusvæðið er að mestu á höfuðborgarsvæðinu, en einnig víða á Suður- og Vesturlandi. Lagnir og strengir eru alls 9.000 km að lengd, sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Shanghai. Veitur þjónusta ríflega 70% landsmanna á einn eða annan hátt.

Hvernig getum við aðstoðað þig?