Rennibekkurinn er af gerðinni Haas TL‑2 CNC en einnig var afhentur veglegur verkfærapakki til notkunar í verklegu námi nemenda. Samstarf af þessu tagi er mikilvægur liður í að efla færni, nýsköpun og áhuga ungs fólks á tæknigreinum. Verkefnið styður jafnframt við stefnu Veitna um uppbyggingu þekkingar og eflingu innviða samfélagsins til framtíðar.
Sigríður Sigurðardóttir, forstöðukona stafrænna umbreytinga, Örn Ingvi Jónsson, deildarstjóri reksturs vatnsmiðla og Pétur Wilhelm Jóhannsson, verkefnastjóri hjá Veitum, afhentu fulltrúum skólans bekkinn þann 9. júní í Tækniskólanum í Hafnarfirði.
„Með gjöfinni viljum við styðja við öfluga iðn- og tæknimenntun og gefa nemendum tækifæri til að kynnast nútímalegum búnaði sem nýtist í atvinnulífi framtíðarinnar“ segir Pétur Wilhelm Jóhannsson, verkefnastjóri hjá Veitum.

