Vel heppnað Nýsköp­un­ar­festival Veitna

Nýsköpunarfestival Veitna, sem fram fór í Elliðaárstöð dagana 3.–5. júní 2025, sló heldur betur í gegn.

Þátttakendur brutu upp dagana með skemmtilegum verkefnum

Um 100 þátttakendur úr röðum starfsfólks Veitna og Orkuveitunnar, sérfræðingar úr atvinnulífinu, frumkvöðlar, hönnuðir og tæknifólk komu saman með það að markmiði að finna skapandi lausnir á mikilvægum áskorunum í orku- og veitustarfsemi.

Festivalinu var ætlað að vera skemmtilegasta vinnuvika ársins og byggðist dagskráin á svokölluðum hönnunarsprettum, þar sem teymi fengu þrjá daga til að greina áskoranir, skapa lausnir og prófa frumgerðir.

Lausnir sem gagnast öllu samfélaginu

Þátttakendur leituðu lausna við fjölbreyttum viðfangsefnum eins og hvernig hraða mætti framkvæmdum í veitukerfum, endurnýta fitu úr fráveitukerfinu, hvetja til meðvitaðrar orkunotkunar meðal almennings, tryggja samræmi milli veituuppbyggingar og þéttingar borgarinnar, auk þess sem þeir endurhugsuðu fráveitukerfi framtíðarinnar með sjálfbærni í forgrunni.

Árangurinn lét ekki á sér standa og fjölmargar ferskar hugmyndir komu fram, sem allar eiga það sameiginlegt að geta nýst bæði Veitum og samfélaginu öllu.

Innblástur frá sérfræðingum úr ýmsum áttum

Á festivalinu héldu erlendir og innlendir sérfræðingar innblásandi fyrirlestra, meðal þeirra voru Dr. Angela MacOscar, nýsköpunarstjóri Northumbrian Water frá Englandi, Max McShane, yfirmaður stafrænnar umbreytingar hjá Octopus Energy í London, og framtíðarfræðingurinn Bergur Ebbi Benediktsson. Sandra Barilli stýrði viðburðinum af skemmtilegri snilld og bráðfyndni. Þau og fleiri sérfræðingar miðluðu dýrmætri þekkingu sem hvatti þátttakendur áfram við hugmyndavinnu og verkefni dagsins.

Litrík tónlistarveisla setti punktinn yfir i-ið

Festivalinu lauk með glæsilegri lokahátíð og tónleikum við Elliðaárstöð. Sprettteymin kynntu lausnir sínar áður en vinsælir listamenn tóku við og héldu uppi fjörinu fram eftir kvöldi. Herra Hnetusmjör, Una Torfa og DJ Dóra Júlía sáu til þess að skapast gæti einstök stemning við tónlistina í þessu einstaka umhverfi Elliðaárstöðvar, sem skilaði sér í mikilli gleði og samhug meðal þátttakenda og gesta.

Mikil ánægja og verkefni sem halda áfram

Festivalinu lauk með mikilli ánægju allra viðstaddra. Nú þegar er ljóst að nokkur þeirra verkefna sem urðu til á festivalinu fá áframhaldandi stuðning til þróunar. Þetta undirstrikar mikilvægi slíkrar nýsköpunarhátíðar fyrir Veitur og Orkuveituna, en með slíkum viðburðum má efla nýsköpunarmenningu innan fyrirtækisins og tryggja að skapandi lausnir komist hratt af hugmyndastiginu og út í raunveruleikann.

Þakklæti til allra sem tóku þátt

Veitur þakka öllum þeim sem tóku þátt innilega fyrir framlag sitt og góða vinnu. Ekki síst ber að þakka þátttakendum í hönnunarsprettunum, sérfræðingum, skipuleggjendum og samstarfsaðilum sem gerðu þetta fyrsta festival að einstaklega vel heppnuðum viðburði. Veitur vonast til að gera Nýsköpunarfestival að árlegri hefð til þess að geta haldið áfram að finna skapandi lausnir sem gagnast samfélaginu til framtíðar. Saman breytum við áskorunum í lausnir!

Birna Bragadóttir, Sandra Barilli og Sólrún Kristjánsdóttir ánægðar með afrakstur dagsins

Hvernig getum við aðstoðað þig?