Breyt­ingar á verð­skrám Veitna 1. apríl 2026

Eftirfarandi breytingar á verðskrá raforku og köldu vatni taka gildi 

Lækkun á verðskrá raforku
Gjöld vegna dreifingar raforku lækka þann 1. apríl vegna lækkunar á flutningsgjaldi Landsnets 
um rúm 10%, úr 2,80 kr./kWh í 2,50 kr./kWh. Það þýðir að orkuverð fyrir almenna notkun, sem er notkun heimila, lækkar í heildina um 3,23% á kílóvattstund. Fast verð helst óbreytt.  

Raforkudreifing er um helmingur rafmagnskostnaðar heimila til móts við raforkusölu sem tilgreind er á reikningi frá raforkusala. Gjöld fyrir dreifingu rafmagns sem Veitur innheimta skiptist í gjöld til Veitna, flutningsgjald til Landsnets, jöfnunargjald og virðisaukaskatt. 

Dreifing er fyrir dreifingu raforku og þjónustu Veitna sem reka dreifikerfið. Það skiptist í fast verð og orkuverð. Fast verð er daggjald og orkuverð er gjald fyrir hverja kílóvattstund.  

Flutningur- Landsnet er fyrir þjónustu Landsnets sem rekur flutningskerfið. Veitur stýra ekki þessum kostnaðarlið en innheimta hann fyrir Landsnet.  

Jöfnunargjald til ríkissjóðs rennur til ríkisins til að jafna kostnað við dreifingu raforku á milli landshluta. Veitur stýra ekki þessum kostnaðarlið en innheimta hann fyrir ríkissjóð.  

Kalt og heilnæmt vatn 
Notkunar- og tengigjöld í köldu vatni hækka um 1,34% og byggist sú hækkun á hækkun á byggingavísitölu, en gjöldin uppfærast skv. byggingavísitölu á 3ja mánaða fresti eins og segir í verðskrá fyrir kalt vatn. Hækkunin hefur einöngu áhrif á fyrirtæki, ekki almenning.  

Heitt vatn, fráveita og þjónustugjöld 
Verðskrá Veitna fyrir heita vatnið, fráveitugjöld og þjónustugjöld haldast óbreytt.  

Á vefnum okkar má finna spurt og svarað um reikninga frá Veitum.  

Verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku er byggð á raforkulögum