Við höfum tekið í notkun rafstrengi sem auka afhendingaröryggi í Mosfellsbæ til muna. Strengirnir liggja á milli tveggja aðveitustöðva, við Dælustöðvarveg í Mosfellsbæ og við Korpu.
Veitur höfðu þegar bætt tengingar fyrir Mosfellsbæ eftir öðrum leiðum. Eldri leiðin frá Korpu var í loftlínu og var lögð fyrir um 50 árum þegar byggðin hét Mosfellssveit. Íbúar í Mosfellsbæ eru nú fjórum sinnum fleiri en þá og það var því tímabært að styrkja kerfið og uppfæra tenginguna frá Korpu.
Meira öryggi og svigrúm til framtíðar
Nýju rafstrengirnir bæta afhendingaröryggi rafmagns í Mosfellsbæ til muna og fjölga þeim leiðum sem nýtast ef bilun verður í kerfinu.
Aflið sem nýju strengirnir geta flutt er rúmlega þrisvar sinnum meira en það sem loftlínan réði við og bærinn getur því haldið áfram að vaxa án þess að Veitur þurfi að bæta við flutningsgetu næstu áratugi.
Minni áhrif frá veðri
Veitur vinna markvisst að því að leggja niður loftlínur og setja strengi í jörðu í þeirra stað.
Jarðstrengir eru mun betur varðir fyrir veðri en loftlínur. Illviðri, frost og hrím hafa lítil áhrif á jarðstrengina sem auka jafnframt öryggi starfsfólks sem vinnur við rafmagnskerfið.
Um loftlínur og niðurtekt þeirra í eldri frétt á vef Veitna.
Nokkrar staðreyndir
Lengd skurða: 5 km
Samanlögð lengd strengja: 30 km
Spenna: 33kV
Flutningsgeta nú: 42 MVA
Flutningsgeta áður: 12 MVA