Gott samtal á íbúa­fundi í Laug­ar­nesi

Veitur leggja áherslu á opin og góð samskipti við nærsamfélagið.

Veitur buðu íbúum og öðrum nágrönnum til íbúafundar á Grand Hótel í gær, þriðjudaginn 18. ágúst. Fyrirhugaðar boranir voru kynntar fyrir gestum, tilgangur þeirra, saga jarðhitanýtingar á svæðinu og hverju má búast við þegar framkvæmdir hefjast.

Brynja Ragnarsdóttir, forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum, sagði frá ástæðum þess að við erum að bora eftir meira heitu vatni. Eftirspurn í hitaveitunni er í sterku sambandi við íbúafjölda og eykst með fjölgun þeirra. Mannfjöldaspá gerir ráð fyrir að íbúum á svæðinu fjölgi um meira en hundrað þúsund næstu tólf árin og þá þarf meira heitt vatn. Veitum ber skylda til að mæta þörfinni og nú er komið að okkar kynslóð að tryggja þessi lífsgæði til framtíðar.

Hlutfall Laugarness í hitaveitu höfuðborgarsvæðisins er neðst á grafinu, það er enn töluvert þó svæðið sé einungis nýtt að vetri til. Myndin sýnir líka skýrt að eftirspurnin eykst. Mikil aukning sést uppúr 1970 þegar nágrannasveitarfélögin voru tengd við hitaveitu.

Þráinn Friðriksson, auðlindasérfræðingur Orkuveitunnar, fór yfir sögu lághitanýtingar í Laugarnesi og mikilvægi hennar fyrir húshitun í Reykjavík. Þriðjungur heita vatnsins sem íbúar og fyrirtæki vestan Elliðaáa fá að vetri til kemur úr Laugarnesinu. Á sumrin eru svæðin hvíld til að tryggja sjálfbæra nýtingu og nýta heita vatnið sem kemur frá virkjunum. Þráinn benti á að orkan í heita vatninu frá Laugarnesi er á við helming þeirrar raforku sem var notuð árið 2025 á höfuðborgarsvæðinu (að undanskildri Staumsvík).

Jón Þór Jónsson, verkefnastjóri borverkefna hjá Veitum, sýndi gestum hvar borplönin verða, hverju má búast við í hljóðvist og umferð á meðan unnið er. Hávaði frá bornum er í lágmarki þar sem hann er rafknúinn, en fyrstu þrjá dagana sem borað verður verða nágrannar mest varir við hann. Að því loknu heyrist lítið frá svæðinu nema einstöku sinnum þegar járn skellur í járn. Við gerð borplana verða vinnutæki og vélar á ferðinni og þar er öryggið í fyrirrúmi.

Við hjá Veitum leggjum áherslu á gott samtal við samfélagið um þessa mikilvægu framkvæmd fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu.

Borplönin í Bolholti og við Engjateig. Lokanir á göngu- og hjólastígum eru merktar með rauðu.
Brynja Ragnarsdóttir ræðir ástæður þess að Veitur eru í þriðju hitaveituvæðingunni
Þráinn Friðriksson segir frá sögu jarðhitaleitar og nýtingar í Laugarnesinu.

Hvernig getum við aðstoðað þig?