Veitur hafa hafið leit að auknum forða heits vatns fyrir höfuðborgarsvæðið til að anna aukinni eftirspurn og til að tryggja aukna seiglu. Veitur hafa ekki farið í jafn umfangsmikla leit að heitu vatni í um 50 ár.
Í þessu leitarátaki er stefnt á að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár. Eitt af markmiðum Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið og því verður borað með rafmagni þar sem því verður komið við, annars verður notast við lífdísel (VLO) sem dregur úr losun um allt að 90% miðað við notkun díselolíu.
Áætlaður samdráttur losunar sem á að nást í ár með notkun rafmagns og lífdísels til borunar er um 3000 tonn CO2 ígildi, sem samsvarar 16-faldri losun bílaflota Veitna í fyrra eða því að aka meðal díselbíl 14.000 hringi kringum landið.
Í myndbandinu er spjallað við Pétur Wilhelm verkefnastjóri Veitna og Emmu Soffíu Elkjær Emilsdóttur sérfræðing í loftslags- og umhverfismálum hjá Orkuveitunni.