Reykjaæð 1 hreinsuð og skoðuð á fertugsaf­mælinu

Umhverfisvæn nýsköpun nýtt til að ástandsmeta 3,5 kílómetra hitaveitulögn.

Lögnin er hreinsuð og ástandsmetin að innan frá Byggðarenda að Perlunni

Reykjaæðar eru stofnlagnir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins og liggja frá lághitasvæðum í Mosfellsbæ að Perlunni. Þær eru með stærri lögnum hitaveitunnar.

Veitur eru að hefja hreinsun (svínun) á Reykjaæð I frá Byggðarenda að Perlunni, um 3,5 km. leið. Svínið, eins og hreinsibúnaðurinn er kallaður, er sett inn í lögnina við stokkinn á Byggðaenda og fer alla leið að Perlunni. Svínið er sent í gegnum lögnina eins oft og þurfa þykir þar til það hefur burstað burt útfellingar innan úr henni. Sambærileg hreinsun var gerð á Nesjavallaæð sumarið 2023 og Reykjaæð 2 frá Skarhólabraut að Bauhaus sumarið 2025 með góðum árangri.

Reykjaæð I er fertug á árinu og hefur ekki verið hreinsuð að innan áður þessa leið.

„Svínið burstar burt útfellingar sem eru fastar innan á lögninni og geta haft áhrif á flutningsgetuna. Þegar hreinsun er lokið þá sendum við skanna í gegnum hana til að kanna hvar þarf að bregðast við með fyrirbyggjandi viðhaldi. Þá getum við lagað lögnina þar sem þarf í staðin fyrir að taka hana alla upp og endurnýja“ segir Indriði Hauksson rekstrarstjóri hitaveitu.

Nýsköpun í ástandsmati

Að hreinsun lokinni senda Veitur skanna í gegnum lögnina til að afla gagna um ástand hennar. Þannig er mögulegt að meta tæringu á Reykjaæð I og gera við skemmdir á afmörkuðu svæði. Við verkið er norski verktakinn ROSEN Veitum til aðstoðar.

Aðferðin gerir Veitum kleift að endurnýja þá hluta Reykjaæðar I sem eru farnir að skemmast, án þess að endurnýja þurfi marga kílómetra lögn sem flytur heitt vatn á stór svæði í Reykjavík. Það takmarkar kolefnissporið verulega í viðhaldi á lögninni og er mun hagkvæmara en að skipta henni út í heild sinni.

Reykjaæðarnar eru mikilvægar flutningsæðar

Reykjaæðarnar eru tvær og flytja heitt vatn af lághitasvæðum í Mosfellsbæ til höfuðborgarinnar. Þær eru báðar 700mm í þvermál og eru með stærri hitaveitulögnum Veitna.

Á sumrin eru lághitasvæðin hvíld eins og kostur er til að tryggja sjálfbærni þeirra til framtíðar. Reykjaæð 2 mun sjá um flutninginn á heita vatninu sem þó þarf að nota á meðan Reykjaæð I er ástandsskoðuð og hreinsuð. Aðrir fá vatn frá virkjunum til húshitunar. Hvíldartíminn gefur Veitum kost á að hreinsa Reykjaæð I að innan án þess að það hafi áhrif á afhendingu heits vatns til viðskiptavina.

Veitur leggja mikið upp úr nýskapandi, umhverfisvænum og hagkvæmum lausnum og sýna það í verki við hreinsun og ástandsskoðun á ómissandi flutningslögn hitaveitunnar.

Reykjaæð I að verða klár fyrir hreinsun

Hvernig getum við aðstoðað þig?