Nýlega hófst vinna við að hreinsa (svína) Reykjaæð 2 frá Skarhólabraut í Mosfellsbæ að versluninni Bauhaus. Hreinsibúnaður, svokallað svín, er sett inn í lögnina við Skarhólabraut og burstar burt útfellingar innan úr lögninni fimm kílómetra leið. Þetta er endurtekið eins oft og þurfa þykir þar til lögnin er orðin hrein að innan. Sambærileg hreinsun var gerð á Nesjavallaæð sumarið 2023 með góðum árangri.
Reykjaæð 2 er rúmlega 50 ára gömul og hefur ekki verið hreinsuð að innan áður.
„Svínið burstar burtu útfellingar sem eru fastar innan á lögninni og geta haft áhrif á flutningsgetuna og ferðalag skanna í gegnum hana. Það kom okkur í raun á óvart hvað kom þó lítið innan úr henni við þessa hreinsun, enda fimm kílómetra leið sem var svínuð“ segir Indriði Hauksson rekstrarstjóri hitaveitu.
Nýsköpun í ástandsmati
Að hreinsun lokinni nýta Veitur nýja aðferð við ástandsmat og senda skanna í gegnum lögnina til að afla gagna. Þannig er mögulegt að meta tæringu á Reykjaæð 2 og gera við skemmdir á afmörkuðu svæði í stað þess að endurnýja þessa mikilvægu lögn í heild sinni. Við verkið er norski verktakinn ROSEN Veitum til aðstoðar.
Aðferðin gerir Veitum kleift að endurnýja þá hluta Reykjaæðar 2 sem eru farnir að skemmast, án þess að endurnýja þurfi marga kílómetra lögn sem flytur heitt vatn á stór svæði í Reykjavík. Það takmarkar kolefnissporið verulega í viðhaldi á lögninni og er mun hagkvæmara en að skipta henni út í heild sinni.
Reykjaæðarnar eru mikilvægar flutningsæðar
Reykjaæðarnar eru tvær og flytja heitt vatn af lághitasvæðum í Mosfellsbæ til höfuðborgarinnar. Þær eru báðar 700mm í þvermál og eru með stærri hitaveitulögnum á höfuðborgarsvæðinu.
Á sumrin eru lághitasvæðin hvíld eins og kostur er og Reykjaæð 1 sér um flutninginn á því sem þó þarf að nota á meðan Reykjaæð 2 er ástandsskoðuð og hreinsuð. Aðrir fá vatn frá virkjunum nýtt til húshitunar á höfuðborgarsvæðinu. Hvíldartíminn gefur kost á að hreinsa Reykjaæð 2 að innan án þess að það hafi áhrif á afhendingu heits vatns til viðskiptavina.
Veitur leggja mikið upp úr nýskapandi, umhverfisvænum og hagkvæmum lausnum og sýna það í verki við hreinsun og ástandsskoðun á Reykjaæð 2.