Útfell­ingar í heita vatninu í Þorláks­höfn

Rannsóknir sýna að varmaskiptar ættu að skila vatni yfir 35°C til að takmarka útfellingar.

Þorlákshöfn fær heitt vatn frá tveimur borholum nærri Bakka og svæðið er gjöfult þannig að nóg er af heitu vatni. Vatnið er mjög heitt frá náttúrunnar hendi, eða um 92°C þegar það kemur að húsum í bænum. Framundan er borun á þriðju holunni sem, ef hún reynist vel, gæti aukið forða fyrir vaxandi samfélag á svæðinu.

Vatnið er kísilríkt, sem meðal annars kemur vegna háa hitans, því svo heitt vatn tekur meira af efnum úr berggrunninum en vatn sem er kaldara.

Rannsóknir Veitna og móðurfélags Veitna, Orkuveitunnar, á eiginleikum heita vatnsins sýna að útfellingar eru mestar í heita vatninu í Þorlákshöfn þegar hitastigið fer niður fyrir 35°C.

Kjörhitastig yfir 35°C

Kjörhitastig fyrir Þorlákshöfn er þá yfir 35°C þegar vatnið hefur verið fullnýtt innanhúss og í snjóbræðslu þar sem hún er.

Flest hús í Þorlákshöfn eru með varmaskipta, en þeir bæði koma í veg fyrir að allt of heitt vatn berist í krana og sjá til þess að útfellingar fari í varmaskiptana í stað þess að berast inn í lagnir og ofnakerfi húsa. Vissulega geta varmaskiptar skemmst með tímanum vegna útfellinga, en það er þó ávallt betri kostur en að ofnakerfi og lagnir innanhúss skemmist.

Veitur mæla með því að heita vatnið sé nýtt þannig að það takmarki útfellingar miðað við svæðið og hefur komið niðurstöðum rannsókna til fagfólks á svæðinu.

Lágmörkum útfellingar með réttum hitastillingum

Það er til mikils að vinna fyrir húseigendur í Þorlákshöfn að hafa kerfin rétt stillt fyrir vatnið sem er á staðnum og fagmenn þekkja vel til. Veitur eru í góðu samstarfi við pípulagningameistara á svæðinu og þau eru meðvituð um eiginleika vatnsins og áhrif hitastigs á útfellingar.

Húseigendur í Þorlákshöfn geta því lágmarkað vandann sem fylgir náttúrulegum útfellingum í heita vatninu með því að stilla varmaskipta þannig að vatnið kólni ekki niður fyrir 35°C þegar það hefur verið fullnýtt, m.a. eftir snjóbræðslu.

Hár upphafshiti vatnsins í hitaveitunni í Þorlákshföfn tryggir mjög góða varmanýtingu þrátt fyrir að skila þurfi vatninu við 35°C. Íbúar fá því ekki minni varma úr hverjum lítra en víða annars staðar á Íslandi þar sem upphafshiti er gjarnan lægri og vatnið nýtt niður fyrir 35°C.

Hvernig getum við aðstoðað þig?