Veitur semja við Avalsson og Hreinsi­tækni

Nýjar áherslur sem auka gæði og bæta þjónustu við viðskiptavini.

Ánægð með undirritun samninga. F.v. Svanur, Sveinn og Björgvin frá Hreinsitækni, Sólrún framkvæmdastýra Veitna, Jóel og Albert frá Stíflutækni.

Veitur skrifuðu í gær undir rammasamning við tvo samstarfsaðila, Avalsson ehf og Hreinsitækni sem gildir til allt að sjö árum. Samningurinn markar tímamót í rekstri og viðhaldi fráveitukerfis Veitna og styður við markvissari stýringu viðhalds, aukin gæði og betri þjónustu við viðskiptavini. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs um hreinsun, myndanir og greiningu fráveitulagna  þar sem lögð var áhersla á langtíma samstarf, öryggismál, gæði og heildstæðar lausnir.

Samningurinn felur í sér hreinsun fráveitulagna og brunna, myndun og ástandsgreiningu lagna, sem og hreinsun dælu- og hreinsistöðva. Markmiðið er að byggja upp enn betri yfirsýn yfir ástand fráveitukerfisins og styðja við ákvarðanatöku um viðhald og endurnýjun á grundvelli gagna. Með samningnum skapast aukinn fyrirsjáanleiki fyrir bæði Veitur og samstarfsaðilana, sem gerir kleift að skipuleggja verkefni betur og auka hagkvæmni og skilvirkni í framkvæmdum.

Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir samninginn mikilvægt skref sem endurspegli framtíðarsýn fyrirtækisins:

„Við fögnum öflugu samstarfi við fyrirtækin. Við lítum til fjölbreyttra þátta í samningunum þar sem niðurstaðan ræðst ekki eingöngu af verðtilboði. Þar metum við einnig samlegð við framtíðarsýn Veitna ásamt hæfni- og gæðakröfum sem styðja við stefnu okkar um frumkvæði að sjálfbærum lausnum með árangur samfélagsins að leiðarljósi.“

Björgvin frá Hreinsitækni og Sólrún framkvæmdastýra Veitna ánægð með undirritun.

Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri Hreinsitækni, segir fyrirtækið ánægt með árangurinn og hlakka til áframhaldandi samstarfs við Veitur um sjálfbærar, öruggar og hagkvæmar lausnir:

„Það er okkur sérstakt ánægjuefni að vera lykil samstarfsaðili Veitna í þessum nýja samningi. Kröfur Veitna eru metnaðarfullar með viðskiptavini og heilbrigði kerfisins í forgrunni. Öflugur mannauður og nýlegur tækjafloti okkar mun nýtast vel í þau verkefni. Með samningnum getum við stýrt verkefnum í samræmi við forgangsröðun Veitna og unnið þau markvisst til lengri tíma. Það samræmist okkar eigin stefnu vel og við hlökkum til samstarfsins.“

Sólrún handsalar samning við Jóel og Albert frá Stíflutækni, Avalsson.

Jóel Örn Einarsson pípulagningameistari hjá Stíflutækni, sem er hluti af Avalsson ehf, segir samninginn tímamótaskref í rekstrinum:

„Við erum stolt af því að Stíflutækni (Avalsson ehf) hafi verið valin til samstarfs við Veitur í þessu mikilvæga verkefni. Við höfum sérhæft okkur í hreinsun, myndun og greiningu fráveitukerfa í mörg ár og höfum lagt mikla áherslu á að fjárfesta í sérhæfðum búnaði, þekkingu starfsfólks og nýrri tækni. Við hlökkum til að nýta þá reynslu í samstarfi við Veitur og halda áfram að þróa þjónustuna með öryggi, gæði og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.“

Samningurinn er liður í áframhaldandi uppbyggingu og þróun fráveitukerfis Veitna. Með reglubundinni hreinsun, myndun og ástandsgreiningu skapast betri forsendur til að viðhalda heilbrigðu kerfi, fyrirbyggja bilanir og forgangsraða endurnýjun þar sem þörfin er mest.

Hvernig getum við aðstoðað þig?