Borað eftir heitu vatni í Laug­ar­nesi

Veitur bora til að tryggja nægt heitt vatn fyrir samfélagið

Reykjavík dregur nafn sitt af rjúkandi jarðhitavatni og víða um borgina eru borholur sem nýttar hafa verið til húshitunar í borginni áratugum saman. Gjöfult lághitasvæði er í Laugarnesinu sem sér hluta Reykvíkinga fyrir heitu vatni stóran hluta ársins. Fjölmargar borholur eru nú þegar í notkun í hverfinu, en mun fleiri eru til staðar þó þær séu ekki lengur nýttar.

Veitur eru í mestu jarðhitaleit á þjónustusvæðum sínum í hálfa öld vegna fólksfjölgunar því tryggja þarf öllum heimilum heitt vatn til framtíðar.

Í ágúst hefja Veitur undirbúning framkvæmda. Fyrirhugað er að bora nærri gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugarvegs/Suðurlandsbrautar. Fyrsta borplanið verður sett upp í Bolholti og síðan á grasblett við Engjateig. Áætlað er að borun hefjist í september-október og það tekur um sex vikur að bora hverja holu.

Staðsetning á holunum var valin í samstarfi við ÍSOR og það er North Tech Drilling sem sjá um að bora eftir heita vatninu.

Hér sjást staðsetningar á fyrirhuguðum borholum

Sjálfbærni er okkur hjartans mál

Veitur hvíla lághitasvæðin á sumrin til að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra til framtíðar og nýju holurnar eru hugsaðar til að tryggja nægt vatn á mestu álagstímum. Þær munu einnig bæta rekstraröryggi hitaveitunnar til muna þegar þær hafa verið virkjaðar.

Borinn sem notaður er verður tengdur við dreifikerfi rafmagns því Veitur leita stöðugt leiða til að takmarka áhrif sín á loftslagið.

Við borun er notað vatn sem hreinsar borsvarfið upp úr holunni. Veitur sía grófasta efnið frá á borstað, en umfram vatni er veitt í gegnum fráveituna þar sem það fer í gegnum hreinsun í hreinsistöð Veitna áður en því er veitt út í sjó.

Kynning fyrir nágranna

Veitur munu boða til fundar fyrir íbúa og fyrirtæki í nágrenninu þann 18. Ágúst kl. 19.30 á Grand Hótel.

Tengdar fréttir
Umfangsmesta leit að heitu vatni í 50 ár
Ár jarðhitaleita hjá Veitum
Reglulegar uppfærslur ásamt spurt og svarað