Vatns­leit við Hvassa­fell í Borg­ar­firði

Fyrstu niðurstöður lofa góðu og áframhaldandi rannsóknir framundan.

Rannsóknarholur í landi Hvassafells í Borgarfirði.

Veitur hafa lokið við borun á rannsóknarholum í landi Hvassafells í Borgarfirði.

Fyrstu prófanir á nýjum borholunum hafa gengið vel. Þar fannst talsvert vatn og fyrstu sýni benda til góðra vatnsgæða. Lítið mældist af bakteríum, leiðni og sýrustig eðlileg og lágt grugg.

Niðurstöðurnar eru jákvæðar fyrir áframhaldandi vatnsöflun í Borgarfirði, en frekari rannsóknir eru fram undan.

Prófanir halda áfram í vetur
Næsta skref er að prófa holurnar aftur yfir veturinn þegar minna er af grunnvatni og lægri vatnsstaða. Þá fæst betri mynd af því hversu mikið vatn svæðið getur gefið í mismunandi árferði. Niðurstöðurnar verða einnig skoðaðar ásamt öðrum rannsóknum sem gerðar hafa verið á og í nágrenni veitusvæðisins í ár.

Veitur eru í góðu samstarfi við landeigendur á staðnum og öll vinna í fullu leyfi og samráði við þau.

Tengdar fréttir

Boranir hafnar fyrir vatnsveitu í Borgarfirði