Lyki­lá­herslur í mannauðs­málum

Við vinnum og vöxum saman í sveigjanlegu starfsumhverfi.

Image alt text

Samkeppnishæf starfskjör og umbun

Við fylgjumst vel með launaþróun á vinnumarkaðnum og höfum þá stefnu að laun skuli vera samkeppnishæf.

  • Við gætum þess vel að kynbundinn launamunur sé ekki til staðar.
  • Starfskjör og hlunnindi taka mið af eðli starfs, frammistöðu, ábyrgð, álagi, og markaðsaðstæðum.
  • Allt starfsfólk á að njóta sömu virðingar og jafnréttis til launa, umbunar og starfsþjálfunar.

Veitur hafa ýmislegt fleira að bjóða starfsfólki:

  • Íþróttastyrk:  til að styðja sig í heilbrigðum lífsstíl
  • Fræðslustyrk: hvort sem er til að efla sig á starfssviði eða í persónulegri færni
  • Samgöngustyrk: til að styðja sig í heilbrigðum og umhverfisvænum lífsstíl
  • Orlofshús: til að njóta góðra stunda utan vinnu víða um land
  • Mötuneyti: til að njóta úrvals hádegisverðar við allra hæfi á lágmarksverði
  • Líkamsrækt: til að styrkja líkamann í góðum félagsskap að Bæjarhálsi

Hvernig getum við aðstoðað þig?