Borað eftir heitu vatni á Jaðars­bökkum í haust

Undirbúningur á staðnum hefst í lok ágúst

Veitur tilkynntu í byrjun árs að borað yrði eftir heitu vatni á Akranesi á árinu. Þegar í upphafi hafði verið ákveðið að ekki yrðu framkvæmdir á staðnum yfir sumarið til að íbúar gætu óáreittir notið verunnar á Langasandi.

Tímaáætlun gerir nú ráð fyrir að framkvæmdir við borplanið hefjist undir lok ágúst og byrjað verði að bora í október. Áður en framkvæmdir hefjast verður húsnæðið næst borplaninu ástandsskoðað.

Jarðhiti er á Akranesi
Það er vitað að á Akranesi er hiti í jörðu, en hingað til hefur ekki fundist vatn í sömu rannsóknarholum. Íslenskar orkurannsóknir hafa lagt til að rannsóknarhola verði boruð á Jaðarsbökkum þar sem líklegast er talið að hvoru tveggja finnist, jarðhiti og vatn.

Akranes er ört vaxandi samfélag og heitt vatn í nýtanlegu mæli væri mikill fengur fyrir bæinn. Heita vatnið á Skagann kemur með einni lögn frá Deildartungu, um 70 km leið, og hefur dugað vel hingað til þó afhendingaröryggi sé verulega háð því að lögnin sinni sínu hlutverki. Afhendingaröryggi myndi því batna töluvert ef heitt vatn finnst sem er óháð stofnlögninni frá Deildartungu, enda væri þá forði til staðar innanbæjar fyrir húshitun á Skaganum.

Rafdrifinn bor hefur léttara kolefnisspor
Borinn sem notaður verður er tengdur við rafmagn í stað díselvélar og loftmengun því í lágmarki við borsvæðið. Notað er vatn og leir við borunina til að borsvarf (bergmulningur) sem verður til, stífli ekki mögulegar hitaveituæðar.

Veitur leita nú leiða til að fínasta efnið sem berst upp með vatninu frá bornum hafi óveruleg áhrif á umhverfið.

Tengdar fréttir

Umfangsmesta leit að heitu vatni í 50 ár
Jarðhitaleit á Akranesi
Ár jarðhitaleitar hjá Veitum