Hollráð um heitt vatn

Njótum þess að hlýja okkur. Heita vatnið okkar er auðlind sem við eigum öll saman. Þegar kalt er úti skiptir máli að nýta heita vatnið vel.

Image alt text
Heitir pottar

Heitir pottar

Við hjá Veitum sjáum um hitaveitu fyrir um 65% landsmanna og dreifum rafmagni til um 60% þeirra. Margir líta á heita pottinn sem punktinn yfir i-ið þegar kemur að þægindum heima og í sumarhúsinu.

Hitaveita eða rafmagn?

Þegar kemur að vali á heitum potti stendur valið á milli þess að kynda hann með rafmagni eða nota hitaveituvatn. Ekki er auðvelt að gefa almennar ráðleggingar um það en mikilvægt er að hafa í huga aðstæður á hverjum stað þannig að nýting á þeim auðlindum sem við búum yfir verði sem best.

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að reikna dæmið til enda og bera saman kosti og galla mismunandi gerða heitra potta og mælum með að fá álit fagfólks við valið.

Rekstrarkostnaður

Mikilvægt er að hafa í huga að staðsetning og einangrun potta hefur áhrif á rekstrarkostnað. Vel einangraður pottur með góðu loki heldur hitastigi vatnsins stöðugra en illa einangraður pottur sem stendur opinn. Þá skiptir máli þar sem sírennsli er í heita pottinum í hversu miklu mæli það er. Við leggjum áherslu á að fara vel með náttúruauðlindirnar og fara sparlega með hitaveituvatnið og rafmagnið. Við hvetjum því viðskiptavini til að setja upp orkusparandi kerfi fyrir heita potta.

Öryggismál

Mjög mikilvægt er að gætt sé öryggis í umgengni á heitum pottum, bæði hvað varðar hitastigið á vatninu og að hafa ætíð lok á honum þegar hann er ekki í notkun. Einnig er mikilvægt að tryggja að lokið sé vel fest hvort sem það er á eða ekki. Mikilvægt er að tryggja að aldrei geti farið of heitt vatn í pottinn.

Lagnir

Við veitum allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig best er að standa að lögnum við heimili og sumarhús og þeim búnaði sem nauðsynlegur er til að njóta heitu pottanna áhyggjulaus. Hikið ekki við að hafa samband ef þinn heiti pottur er á þjónustusvæði okkar.

Hvernig getum við aðstoðað þig?