Veitur tryggja alltaf aðgengi að heilnæmu neysluvatni og leggja sérstaka áherslu á eftirtalda þætti:
Að vera með eftirlit, vöktun og forvarnir til að draga úr líkum á að vatnið mengist.
Að áhættugreina mikilvæga eftirlitsstaði og tryggja að greiningar verði gerðar í hvert sinn sem einhver breyting (nýir verkferlar, tæki, búnaður, efni, veitusvæði eða ytri þættir) á sér stað sem getur haft áhrif á öryggi og heilnæmi neysluvatnsins.
Að vera með stýringar allt frá ákomusvæðum til neytenda til þess að draga úr líkum á því að vatn spillist.
Að þjálfa starfsfólk og þjónustuaðila til þess að vinna að öruggri vatnsöflun og dreifingu.
Að fylgja stjórnvaldskröfum sem gerðar eru varðandi matvælaöryggi og öðrum kröfum sem fyrirtækið hefur ákveðið að uppfylla.
Að stuðla að enn frekari samvinnu við hagsmunaaðila.
Að vinna að stöðugum umbótum matvælaöryggisstjórnunarkerfisins.
Matvælaöryggisstefnan byggir á gildum og heildarstefnu Veitna.