Stefna

Veitur leggja grunn að lífsgæðum samfélagsins.

Image alt text
Upplýsingatæknistefna

Upplýsingatæknistefna

Veitur líta á upplýsingatækni sem mikilvægt tæki til að styðja við rekstur fyrirtækisins. Upplýsingatæknistefna varðar hagnýtingu á upplýsingatækni í starfsemi fyrirtækisins. Kerfi, þjónusta og tækninýjungar skulu vera öflug stoð við þau markmið sem fyrirtækið hefur sett sér, í dag sem og í framtíðinni. Áreiðanlegar upplýsingar eru nýttar til stýringar, þjónustu og ákvarðanatöku.

Upplýsingatæknistefnan styður við heildarstefnu Veitna og er mikilvægur þáttur í virðiskeðju fyrirtækisins.

Markmið með upplýsingatæknistefnu Veitna er að:

  • Kerfi og gögn séu áreiðanleg, aðgengileg og örugg
  • Heildaryfirsýn á upplýsingatækni sé á einum stað
  • Rekstur upplýsingatækni sé eins hagkvæmur og kostur er
  • Styðja við frumkvæði og nýsköpun

Stefnan byggir á gildum og heildarstefnu Veitna og er sett fram til samræmis við eigendastefnu samstæðu OR.

[Stefna yfirfarin og samþykkt á stjórnarfundi 24.11.2022]

Hvernig getum við aðstoðað þig?